Alister McGrath magnaður trúvarnarmaður í Skálholti

Þessi eftirtektarverði guðfræðingur og merkilegi vísindamaður var ótrúlega flottur í fyrirlestrum sínum í Skálholti. Það er ekki vanþörf á þessari skeleggu trúvarnarbaráttu hans enda hefur hann haft gríðarleg áhrif víða um heim. Apólógetían er nauðsynleg og ef menn setja hana fram á jákvæðan hátt rifa sólargeislar trúarvissunnar inn í líf hvers manns.

Ég lét það líka koma fram í prédikun minni í Landakirkju í morgun að trúvörn hefur á sér minnst tvær hliðar. Eitt er að verja trúna á Jesú Krist. Hitt að skynja hvernig trúin á hann ver mig og þig. Og ég vitna í Lewis: "Ég er kristinnar trúar á sama hátt og ég er fullviss um sólarupprásina í morgunn. Ekki af því að ég sé sólina eða Guð heldur af því að í ljósi þess sé ég allt í þessu lífi." Ég sé ekki alltaf sólin en birta hennar lýsir daginn. Verk Guðs eru augljós í náttúrunni og sögu mannkyns - og líka í mínu lífi.

Margt var grípandi í máli McGrath. Einn molinn er skondinn: Þeir sem aðhyllast trúleysi á forsendum vísindalegra rannsókna hafa sumir sagt að trú á Guð sé einsog vírus í huga mannsins. Dawkins nokkur í Oxford hefur m.a. haldið þessu fram. En ef við skoðum þessa fullyrðingu, sem er í dulargervi vísindalegrar framsetningar, kemur í ljós að engar vísbendingar eru til um tilvist slíkra vírusa. Það er með engu móti hægt að sýna fram að slíkt sé til og hvað þá rannsakanlegt með nokkurri aðferðafræði vísindamanna, hvorki sem agnir, örður eða efnaskipti. Trúin á að enginn guð sé til byggir þá á venjulegum forsendum átrúnaðar ef hún er sett fram með svona fullyrðingum.

Það minnir mig á mann einn sem sagðist vera "lútherskur trúleysingi". Það var ekki annað hægt en dást að slíkri lífsafstöðu og virða hana sem lífsskoðun hvað sem þetta þýddi í þessu átrúnaðarkerfi einstaklingsins.

http://www.skalholt.is/2008/04/21/alister-e-mcgrath-heimsaekir-skalholt/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú er McGrath frægur fyrir að fara rangt með málflutning Dawkins, hefur þér dottið í hug að lesa sjálfur það sem Dawkins hefur skrifað?

Óli Gneisti (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 18:51

2 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Kristján:

...hafa sumir sagt að trú á Guð sé einsog vírus í huga mannsins.

...

En ef við skoðum þessa fullyrðingu, sem er í dulargervi vísindalegrar framsetningar, kemur í ljós að engar vísbendingar eru til um tilvist slíkra vírusa.

Ég feitletraði "einsog". Það heldur því nefnilega enginn fram að það séu einhverjir raunverulegir vírusar. Ekki taka þessu svona bókstaflega.

Trúin á að enginn guð sé til byggir þá á venjulegum forsendum átrúnaðar ef hún er sett fram með svona fullyrðingum.

Hverjar eru "venjulegar forsendur átrúnaðar"?

Hjalti Rúnar Ómarsson, 7.9.2008 kl. 19:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristján Björnsson
Kristján Björnsson
Eyjaklerkur
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 39636

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband