Kristján Björnsson

Sóknarprestur Vestmannaeyinga. Kirkjuráðsmaður síðan 2006 og kirkjuþingsfulltrúi fyrir Kjalarnessprófastsdæmi síðan 2002. Var ritstjóri Kirkjuritsins í níu ár og sóknarprestur í V-Hún '89 - '98, vígður á Hólum í Hjaltadal. Stundaði fullt CPE resident-nám í Tampa á Flórída '03 - '04, en það er starfsnám í klínískri sálgæslu (fyrir sjúkrahúspresta). Hef stýrt verkefnum í áfallahjálp af og til og verið í áfallateymum síðan í snjóflóðunum í Súðavík '95. Var í fulltrúaráði Hjálparstarfs kirkjunnar í sex ár og í héraðsnefnd Kjalarnessprófastsdæmis um tíma. Hef sótt nokkur kirkjuleg þing, ráðstefnur, námskeið og fyrirlestra í gegnum tíðina í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Þýskalandi, Ítalíu, Ísrael, Hong Kong, Flórída, Massachusettes og hér heima á Íslandi. Mínir eigin litlu fyrirlestrar hafa aðallega verið um sorgarvinnu, áfallahjálp, hörmungar, tengsl í fjölskyldum, siðfræðileg efni og biblíufræði, en í seinni tíð hef ég lagt rækt við kirkjurétt vegna ýmissa nefndarstarfa. Ég var blaðamaður hjá Indriða G. í rúm tvö ár og hef ritað smáræði hér og þar. Annars var ég áður byggingaverkamaður, lögregluþjónn, þjóðgarðsvörður og bifreiðastjóri, að ekki sé minnst á hvalskurðinn.

Ætli ég sé ekki prýðilegur hestamaður, fullreyndur hjálparsveitarmaður, þokkalegur á skíðum, bærilegur félagsmálakarl, háforgjafarmaður í golfi, frekar slappur veiðimaður og afleitur snókerspilari. Fjölskyldan er nokkuð stór þar sem ég er einn af fimm systkinum og fimm barna faðir, en börnin fædd á löngu árabili, 1980, '83, '89, '90 og '03. Eiginkona mín er Guðrún Helga Bjarnadóttir, leikskólafulltrúi.

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Kristján Björnsson

Höfundur

Kristján Björnsson
Kristján Björnsson
Eyjaklerkur
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 39664

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband