Kreppuafmæli fimmtugs eyjaklerks

Þá er komið að því að ég verð 50 ára laugardaginn 6. des. Þeir sem vilja gleðjast með mér og fjölskyldu minni er boðið í fátæklegan sal í Frímúrarahúsinu við Básaskersbryggju (gamla Geirseyri) sama dag kl. 17 – 19 og þiggja léttar veitingar. Í stað gjafa bið ég fólk að koma með gleðina með sér en leggja fé sitt frekar til líknar- og styrktarsjóða. Einnig verður baukur á staðnum í söfnun fyrir innanlandsaðstoð kirkjunnar.

Fjölskyldan og vinir hafa verið að útbúa salinn og gera klárt. Xprent prentar út myndir, Eyjaís skaffar klakann í fiskiker Vinnslustöðvarinnar, vínið kemur frá Ástralíu og bjórinn ofan af klaka, eins og límonaði og kóka-kóla. Nammið verður íslenskt og fríkadellurnar af pönnu frúarinnar og smáræði úr eldhúsinu hans Gríms kokks, bakstur úr ofni Guðrúnar Helgu og frá Arnóri bakara. Svo verða vonandi ýmsir til að syngja eða halda spaklegar ræður. Reynt verður að stilla ræðum í hóf en tónlist er vel þegin ef einhver vill leggja á borð með sér.

Allir velkomnir sem vilja gleðja okkur fjölskylduna á þessum tímamótum.

Hér kemur svo myndin af afmælisspjaldinu og yfirskrift karlsins (t.d. Mt. 5.16) á einum veggnum í hinum fátæklega en bjarta sal:

afmælismyndin

Hér er svo farið að þynnast meðal veislugesta. Synd hvað mikið var eftir í ískarinu.

IMG_3984

Má vera að ég fái fleiri myndir sendar innan tíðar. Nokkrar góðar birtust þó í Vaktinni í Eyjum af góðum gestum, kór Landakirkju og fleirum, en auk þeirra spiluðu Eymenn, þeir Finnur, Frikki og Einar, og kvartettinn Mandal söng eftirminnilega. Veislustjórarnir voru þeir synir mínir, Bjarni Ben og Sigurður Stefán, auk tengdasonarins in spe Péturs Vilhjálmssonar.

Hjartans þakkir fyrir alla gleðina sem þið sýnduð mér öll, takk fyrir kveðjur og gjafir, en allra bestu þakkir fyrir gjafir í styrktarsjóði. Í boðinu söfnuðust 82 þúsund krónur til innanlandsaðstoðar Hjálparstarfsins. Takk fyrir það og líka geitur til Afríku og önnur framlög. Maður þyrfti að verða fimmtugur sem oftast.

Og takk líka, elskuleg eiginkonan mín, Guðrún Helga fyrir að elda ofan í mannskapinn :)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kæri vinur, Okkar ynnilegustu hamingjuóskir í tilefni þessa merka áfanga. Þá er strákurinn loksins orðinn stór og kominn í hóp fullorðinna!!! Vonum að dagurinn verði ykkur fjölskyldunni hamingjuríkur.. Okkar bestu kveðjur til"séra "Guðrúnar.  Gangið á guðs vegum.

Kærar kveðjur

Guðný og Jóhann Ragnarsson

(br.kveðja frá Jóhanni)   :o)

Jóhann Kristján Ragnarsson (IP-tala skráð) 6.12.2008 kl. 15:07

2 identicon

Kæri vinur.

Okkar ynnilegustu hamingjuóskir í tilefni þessa merka áfanga.

Þá ertu loksins kominn í hóp "alvöru"fullorðinna.

Megi dagurinn verða þér og þínum sem ánægjulegastur.

´"séra" Guðrún, Hamingjuóskir með "strákinn"

Kærar kveðjur frá Guðnýju og Jóhanni Kr. Ragnarssyni.

(br.kveðja frá Jóhanni)  :o)

Guðný S. Þorleifsdóttir (IP-tala skráð) 6.12.2008 kl. 15:29

3 identicon

Kæri Kristján,

Hjartanlega til hamingju með afmælið í dag

Vonandi var dagurinn góður 

Bestu kveðjur

Ella, Ægir, Ármann, Hjördís, Brett, Þór Benedict & Óðinn Ægir. 

Fjölskyldan Búhamar 24 (IP-tala skráð) 6.12.2008 kl. 23:48

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hjartanlega til hamingju með afmælið, Kristján!

Jón Valur Jensson, 7.12.2008 kl. 03:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristján Björnsson
Kristján Björnsson
Eyjaklerkur
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 39646

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband