Ódýrara ef við gætum treyst Alþingi

Miklu myndi það muna ef við gætum treyst Alþingi til að ganga í endurskoðun á stjórnarskránni. Bara að við gætum treyst þeim til að skilja betur á milli löggjafarvaldsins og framkvæmdavaldsins, en það er eitt brýnasta verkefni þjóðarinnar ef litið er til þess hvernig við viljum sjá lýðræðsiríkið þróast. Það er enginn vafi að það þarf að þróast frá konungsskipan til lýðveldis. Aðgreining æðsta valdsins er nauðsyn. trúlega er það borin von að við fáum Alþingismenn til að ganga af heilindum fram í því verki, enda myndi það kollvarpa valdakerfinu sem nú er ríkjandi. Og það sem meira er, er trúlega alveg sama niður í hvaða flokki við dræpum fæti með tillögur um breytt hlutverk löggjafarþingsins. Sá sleppir illa því valdi sem hann hefur. 
mbl.is Stjórnlagaþing kostar 1,7 til 2,1 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Magdalena Ágústsdóttir

Vel orðað, traust er ofmetið orð eða vanmetið. Sér í lagi í pólitík.  Enda finnst mér þessum pólitíkusum sé svo sem sama hvort þeir njóti traust eða ekki, þeir þjösnast bara áfram, sama hvort við séum ánægð með það eða ekki.

Kristín Magdalena Ágústsdóttir, 17.3.2009 kl. 08:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristján Björnsson
Kristján Björnsson
Eyjaklerkur
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 39646

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband