30.9.2008 | 17:32
Aðgerðir vegna Glitnis hafa mikil áhrif mjög víða - allt hverfullt
Það er óskandi að hvorki Stoðir né nokkurt annað fyrirtæki eða einstaklingar verði fyrir svo hrikalegum skakkaföllum að fara í gjaldþrot vegna þessara stórtæku björgunaraðgerða vegna Glitnis. Einhvern veginn held ég þó að það sé raunsætt mat að inngrip ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans verði í framtíðinni gert að skólabókardæmi um hversu vítæk áhrif ríkisafskipti geta haft á fjármálamarkað í einu litlu landi. Verst þótti mér að horfa framaní fólkið á götunni sem átti e.t.v. ekki nema eina eða fáeinar milljónir í hlutabréfum í Glitni og sá nú arfahlutinn sinn skreppa saman. Vonandi enginn einstaklingur í stórskuld og veði vegna lántöku við hlutabréfakaupin eins og var með marga í DeCode ævintýrinu um árið. Þið sem hafið núna bæði átt og tapað eigið samúð mína alla, en sjálfur hef ég löngu lært að allt í er heiminum hverfult.
Telur Stoðir ekki fara í þrot | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bloggvinir
- ragnargeir
- baldurkr
- orri
- baenamaer
- peyji
- kristleifur
- vonin
- kjartanvido
- jonvalurjensson
- kitta
- daystar
- theld
- alit
- zeriaph
- sigthora
- arnisvanur
- kex
- eyjapeyji
- lundi
- bajo
- gauisidda
- gudni-is
- enoch
- icejedi
- nkosi
- gattin
- einarhardarson
- fhg
- gebbo
- helgigunnars
- kht
- credo
- krist
- kristinm
- trumal
- solvi70
- vefritid
- vilhjalmurarnason
- tbs
- thorhallurheimisson
Tenglar
Mínir tenglar
- Heimasíða Landakirkju í Vestmannaeyjum
- Sjúkrahúsið mitt í Tampa á Flórida Hér lærði ég klíníska sálgæslu 2003 - 2004 og lærði margt. Bráðamóttakan er mjög flott og allt annað í TGH enda hátæknispítali í fremstu röð.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það voru óskemmtilegar fréttir í gær.
Út af Stoðum þá skipaði fjármálaeftirlitið svo fyrir að Peningamarkaðssjóður Byr skyldi lækka innistæður fólks um rúmlega 7%.
Ég er að hugsa er þetta ein leið til að láta fólk borga Glitni, eða hvað.
Hafnarfjarðarkona (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 18:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.