Þetta er auðvitað líka alveg rétt, en ...

Hér er frétt úr vísi.is sem var undir fyrirsögninni: Páfinn gagnrýnir fjármálahrunið. Ætli það sé ekki réttara að segja sem svo að hans heilagleiki gagnrýni það á hverju fólkið hafi grundvallað lífsgildi sín. Ég þekki nokkuð marga sem lifa grandvarlega í Guði en hafa líka tekið þátt í viðskiptum og verið virk í fjármálaheiminum. Hvað með hinn trúa og dygga þjón sem ávaxtaði fé húsbónda síns vel?

Benedikt XVI 

"Benedikt páfi sextándi segir að fjármálakreppan í heiminum sé til marks um hve eftirsóknin eftir peningum og veraldlegum frama sé lítils virði . Páfi sagði í dag að peningahrunið og gjaldþrot bankanna sýndi að fólk ætti ekki að byggja líf sitt á peningum heldur ætti grundvöllurinn að vera guðs orð. Páfi sagði í ávarpi á fundi biskupa í Vatíkaninu að þeir sem sæktust eftir frama og peningum byggðu hús sín á sandi."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgirsm

Sæll Kristján

Í pistlinum þínum stendur eftirfarandi,,,,,,Páfi sagði í dag að peningahrunið og gjaldþrot bankanna sýndi að fólk ætti ekki að byggja líf sitt á peningum heldur ætti grundvöllurinn að vera guðs orð. !!!!!ekki að byggja líf sitt á peningum ?  hugsa sér að fólk taki mark á þessum orðum páfans, sérstaklega ef þessi mynd er látin fylgja með þessari frétt.

Það mætti segja mér að fyrir andvirði höfuðfatsins sem hann er með, og stólsins sem hann situr í, mætti framfleyta heilum ættflokki í Afríku þónokkur misseri. 

Þetta er hálf öfugsnúið

Kveðja

Birgirsm, 7.10.2008 kl. 22:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Kristján Björnsson
Kristján Björnsson
Eyjaklerkur
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 39684

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband