12.2.2009 | 10:31
Guð láti gott á vita
Fyrsta loðnan til Eyja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.2.2009 | 10:28
Skil vel, en lausnin er til ef menn vilja
Mikið skil ég Rakel vel og gott hjá henni að koma fram og þora að sýna þetta dæmi á sjálfri sér. Til hamingju með það Rakel.
Hér ætti hins vegar að finnast lausn og það er fullkomnlega í hendi þeirra aðila sem bjuggu til þessa stöðu. Það ætti að vera hægt að breyta láni sem er orðið svona öfgafullt. Bankinn ætti að sjá hag sinn í því að hætta þessari okurlánastarfsemi og finna leið til að breyta svona láni. Það myndi lagast mest við það að stytta lánstímann úr 40 árum í 25, en 40 ára lán á erlendum gjaldeyri eða í fullri verðtryggingu er næstum því glæpur í sjálfu sér. Hin aðgerðin, sem ætti að vera leyfileg og fær, er að breyta úr gjaldeyrisláni í íslenskt verðtryggt lán. Við viðsnúning í gengisþróun munu eftirstöðvar þessa láns að vísu breytast aftur til hins betra og forsendur lánsins verða eðlilegar.
Það er til lausn sem er fær af því að löggjafinn fer með valdið í þessum efnum og Ríkið á þessa banka og Íbúðalánasjóðinn líka. Og fólk eins og Rakel kýs fulltrúa sína á löggjafarsamkomuna.
Þetta er mannleg krísa af því að hún er búin til af okkur mönnunum. Bankinn ætti að hafa þessi úrræði svo Rakel geti áfram borgað af húsnæðisláni og haft hæfilegt þak yfir höfuðið. Það er engin óeðlileg krafa í orðum Rakelar en staðan sýnist vera sú að hún er föst í þessari stöðu. Það er mjög gott að vilja tala um það ófrelsi sem slík staða hlýtur að valda. Gott mál, en enn betra að laga aðstæðurnar.
Föst í of lítilli íbúð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.2.2009 | 10:12
Mannapólitíkin ráðandi og græðgin lifir
Það er ótrúlega dapurt að horfa uppá það þessar vikunarnar hvernig mannapólitíkin yfirskyggir alla umræðu um þjóðfélagsmál um þessar mundir. Krafa mótmælenda snýst helst um eitt og eitt nafn eða mannaskipti sem slík. Ég hef hlustað og hlustað en heyri ekki kröfu um einhverja sérstaka stefnu í peningamálum. Krafan er um mannabreytingar og velferð skuldugra heimila. Helst er þó að heyra að menn vilji breytta vaxtastefnu svo skuldir heimila og fyrirtækja lækki.
Ekki heyri ég kröfu til varnar lífeyrissjóðum landsmanna gegn spákaupmönnum og fjárfestum sem eiga allt sitt undir því að skuldavafningar viðskiptabanka og lífeyrirssjóða haldi. Hinir ríkustu fjárfestar vilja ekki gefa eftir og því mun það kosta landsmenn óheyrilegan skaða í töpuðum lífeyri í framtíðinni. Græðgin er enn allsráðandi, græðgi í valdastóla og græðgi í peningagróða.
Umbæturnar í stjórn landsins snúast of mikið um tiltekna menn. Of lítið um innihald. Það ætti að setja "low profile" fólk í allar þessar stöður og "no nonsense" vinnusama einstaklinga. Best ef þeir hafa hvorki átt nokkurn hlut nokkurn tíma í nokkru fjármálafyrirtæki og best ef þeir hafa aldrei komið nálægt bankastarfsemi.
Af hverju ekki að setja fólk í stjórnir FME og Seðlabanka og ríkisbankana sem hefur einfaldlega gott brjóstvit, heilbrigða skynsemi og æðri gildi fyrir sjónum?
4.2.2009 | 14:01
Til hamingju sr. Bolli
Sr. Bolli Pétur Bollason valinn í Laufásprestakalli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.2.2009 | 09:22
Hestar róast yfirleitt eða hætta að berjast um en gefast ekki upp
Það var mikil mildi að ekki fór verr og þökk sé snarræði og hreysti viðstaddra. Ekki var ég þarna en Fjölnir virðist af fréttum hafa sýnt sanna íslenska hreysti - víkingur.
Reynsla mín af hestum í dýjum og ófærum vötnum og ám er að þeir róast fljótt og hætta að berjast um þegar ekki gengur að komast uppúr einn tveir og þrír. En þegar tekst að koma framfótum uppúr eða lyfta undir framfætur beita þeir því sem eftir er af kröftunum og það geta verið miklir kraftar. Þeir spara þá. Lærði þetta í göngum framan við Dauðsmannskvísl með gangnamönnum úr Víðidal. Minnir að Sigurbjartur á Sólbakka hafi kennt mér hvernig maður sækir framfæturnar ofan í dýið og leggur flatar fram, en sprettir áður af (sem er lykilatriði) og tekur útúr. Ef þetta dugir ekki verður að fara aftur undir hann og lyfta. Satt að segja held ég að þetta sé bara fyrir hreystimenni að stunda hestamennsku við þessar aðstæður.
Af fréttum að dæma hefur Fjölnir einmitt gefið klárunum fast undir framfætur með því að láta á stíga efst á lærið. Þeir þurfa bara átyllu. En ég sé ekki að nokkur hafi sprett af fyrr en uppúr var komið, sjálfsagt af því allt gerist mjög hratt.
Einn í einu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2009 | 09:05
Og Kristján eini ráðherrann sem er áfram!
Ferjan bilar og bilar og samt var Kristján Möller eini ráðherrann sem fékk að halda sínum ráðherradómi í samgönguráðuneytinu. Merkilegt.
og í leiðinni búinn að leggja af flugumferðastjórn í Vestmannaeyjum og á Bakka. Minnisverðir póstar í ráðherratíð.
Herjólfur fer ekki fyrri ferð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.2.2009 | 08:35
Sannarlega eitt mikilvægasta verkefni þjóðarinnar
Björg kaus að vinna að nýrri stjórnarskrá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.1.2009 | 11:32
Stendur vaktina svikalaust
Það er ekki annað að sjá en Geir hafi staðið vaktina svikalaust allt til þessa frá því í október. Ekki get ég óskað nokkrum manni að hafa einmitt verið á vakt í haust þegar bankarnir hrundu og ofvaxin spilaborg fjármálaheimsins fauk um koll.
Merkilegt að við skulum þrátt fyrir allt hafa í okkur og á og ekki annað að sjá en ljósin logi og straumur á flest öllum kerfum samfélagsins, fiskur berst að landi og skepnur á húsi. Ekki viðlit að fá iðnaðarmann. Æsingurinn er á köflum aðeins of mikill, en gremja er skiljanleg hjá þeim sem hafa glatað miklu fé eða eru að tapa húsunum vegna óhugnanlegra lánakjara. Ekki vildi ég hafa þá við stjórnvölin sem espa og æpa, meira að segja af ræðustól Alþings.
Getur verið að gremjan sé að hluta vegna þess að fólk hafði sett traust sitt á peninga og eignir en ekki eitthvað sem varir?
Margvíslegar aðgerðir stjórnvalda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.1.2009 | 10:20
Nýr Herjólfur??
Enginn vill kaupa lúxussnekkju Saddams | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.1.2009 | 22:54
Weimar?
Ég hugsa oftar og oftar um upplausnarástand Weimar-lýðveldisins. Veit ekki alveg af hverju þessi hugrenningartengsl eru að styrkjast, en styð það heilshugar að Alþingishúsið okkar verði varið í ljósi upphafsins að þeim hörmulega kafla í sögu Þýskalands. Guð forði okkur frá því að næst verði farið að kalla eftir sterkum leiðtoga sem virðir ekki stjórnskipan landsins!!!
En svo spyr ég hvort fólk hafi virkilega verið að mótmæla því að þingfundir löggjafarsamkomu lýðveldisins hafi verið að hefjast að nýju eftir áramót. Það mætti ætla af fréttinni. Getur verið að mótmælum, sem í eðli sínu eru bæði skiljanleg vegna þrenginga þjóðarinnar og í sjálfu sér æskilegur tjáningarmáti almennings í landinu, sé leynt eða ljóst beint gegn lýðræðislegu skipulagi? Það var ekki að heyra á grófu orðfæri og stjórnleysi á þinginu að virðing væri meðal allra þingmanna fyrir sjálfu Alþingi.
Það er líka mjög mikið umhugsunarefni hvað það er breiður hópur fólks sem kemur til þátttöku í mótmælunum. Og tilefni fólks virðist líka vera sprottið af ólíkum rótum frá einum til annars. Í því öllu er einmitt fróðlegt að heyra viðtöl þar sem þátttakendur eru spurðir um ástæðu þess að það sækir mótmælafundina.
Svæði við þinghúsið rýmt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
- ragnargeir
- baldurkr
- orri
- baenamaer
- peyji
- kristleifur
- vonin
- kjartanvido
- jonvalurjensson
- kitta
- daystar
- theld
- alit
- zeriaph
- sigthora
- arnisvanur
- kex
- eyjapeyji
- lundi
- bajo
- gauisidda
- gudni-is
- enoch
- icejedi
- nkosi
- gattin
- einarhardarson
- fhg
- gebbo
- helgigunnars
- kht
- credo
- krist
- kristinm
- trumal
- solvi70
- vefritid
- vilhjalmurarnason
- tbs
- thorhallurheimisson
Tenglar
Mínir tenglar
- Heimasíða Landakirkju í Vestmannaeyjum
- Sjúkrahúsið mitt í Tampa á Flórida Hér lærði ég klíníska sálgæslu 2003 - 2004 og lærði margt. Bráðamóttakan er mjög flott og allt annað í TGH enda hátæknispítali í fremstu röð.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar