17.12.2008 | 21:45
Kallar á iðrun og yfirbót
Meining þessara mótmælenda er í raun ótrúlega nálægt eðli aðventunnar. Á aðventunni er kallað eftir iðrun og yfirbót, að fólk sjái að sér og vinni raunveruleg yfirbótarverk. Aðfarirnar eru reyndar hrikalegar þótt þær séu á margan hátt skiljanlegar.
Ef þessi hugsun mín reynist gáfuleg er líka jafn líklegt að við njótum þess enn frekar en áður að ganga inn í helgi jólanna eftir viku. Spurning hvort ekki sé bara andleg heilsubót í því að hreinsa svona huga sinn.
En ég minni alla á helgi mannsins. Hinn meinti afbrotamaður er meira að segja helgur í sjálfu manngildinu vegna þess að hann er skapaður í mynd Guðs þrátt fyrir allt. Árás á bankamanninn Tryggva Jónsson og árásin Jón Ásgeir á götu úti er t.d. jafn óásættanleg og aðför að nokkrum manni öðrum.
Samkvæmt þessari hugsun eiga mótmælendurnir sjálfir eftir að leita iðrunar í eigin lífi jafn einbeitt og þeir deila á aðra. Það er væntanlega verkefni þessarar þjóðar í heild.
Ruddust inn í Landsbankann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.12.2008 | 21:23
Undirstrikar vanmátt fjórða valdsins - gagnrýnin reynist sönn
Það er eiginlega of freistandi að hnjóða í Reyni, mann sem hefur ekki sýnt mikla vægð í sínum blaðamannsferli. Maður fer að velta fyrir sér ýmsu í hans blaðamennsku, smyglinu og fleiru. Það ætla ég því ekki að gera enda gæti einhver farið að halda að hann hafi e.t.v. einhvern tíma þjarmað að mér. Eftir minni bestu vitund er það nú ekki þótt hann hafi tvisvar eða þrisvar skrifað upp nafnið mitt í tengslum við fréttir af öðru fólki.
Hins vegar verður ekki framhjá því horft að fjórða valdið í samfélaginu býður mikinn hnekki ef Reynir Traustason situr áfram sem ritstjóri. Fjölmiðlar hafa sannarlega fengið að heyra það undanfarnar vikur að þeir hafi brugðist hlutverki sínu - einmitt vegna eignahalds og hagsmunatengsla við ráðandi menn í fjármálaheiminum.
Slæmt að þessi gagnrýni á fjölmiðla reynist sönn. Það er líklega stærsta fréttin í þessu. Með hvaða broddi ætla ærlegir blaðamenn að stinga á úldin kýli í fjármálaheiminum eða t.d. hjá stjórnvöldum eftir þetta?
Aldrei aftur mun óttinn stýra fréttaflutningi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.12.2008 | 21:10
Viðbrögð Jóhönnu ráðherra sýna skilning hennar
Það er með hryllingi sem ég horfi upp á vaxandi ólgu og ákafa í framgöngu mótmælenda í Reykjavík. Atgangurinn við ráðherrabústaðinn um daginn var í raun mjög sterk og alvarleg áminning um hugarástand hjá hópi fólks. Ekki veit ég neitt um það hversu vel þessi mótmælaaðferð fellur að hugmyndum þorra landsmanna. Ekki veit ég hvort ég get yfirhöfuð dæmt um það hvort það er í lagi að koma svona fram eða hvort það sé réttlætanlegt að fólk sýni andúð sína í garð ríkisstjórnar með þessum hætti eða ekki.
Það sem situr eftir í huga mér fram á þennan dag, daginn eftir, eru viðbrögð Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra. Af viðbrögðum ráðherra sem sýnd voru í sjónvarpi, vitnuðu viðbrögð Jóhönnu um einstakan skilning á aðstæðum. Ef ég man þetta rétt: "Þetta er alveg ferlegt ástand og það fer stöðugt versnandi." Henni leið illa yfir þessu ástandi og átti erfitt með að horfa upp á það versna og átökin að harðna með hverjum deginum.
Það er ef til vill ekki lengur sá mikli fjöldi þátttakenda í mótmælaaðgerðunum sem farið hafa fram á Austurvelli og á fundunum í Háskólabíói og víðar. Ástandið er að versna af því að það verður stöðugt meira áberandi hversu margir ganga nú harkalega fram. Líka eins og í Landsbankanum í dag. Það er engu líkara en sá hópur stækki sem líður þannig að það sé engu að tapa. Það er hrikalegt ástand ef stöðugt fleiri Íslendingum líður þannig eða finnst þeir vera komnir í þvílíkt þrot. Í því er mikið niðurbrot þegar þjóðin þarf á því að halda að sjá ljósa von, standa saman og hefja sig upp úr erfiðu efnahagsástandi.
3.12.2008 | 16:18
Kreppuafmæli fimmtugs eyjaklerks
Þá er komið að því að ég verð 50 ára laugardaginn 6. des. Þeir sem vilja gleðjast með mér og fjölskyldu minni er boðið í fátæklegan sal í Frímúrarahúsinu við Básaskersbryggju (gamla Geirseyri) sama dag kl. 17 19 og þiggja léttar veitingar. Í stað gjafa bið ég fólk að koma með gleðina með sér en leggja fé sitt frekar til líknar- og styrktarsjóða. Einnig verður baukur á staðnum í söfnun fyrir innanlandsaðstoð kirkjunnar.
Fjölskyldan og vinir hafa verið að útbúa salinn og gera klárt. Xprent prentar út myndir, Eyjaís skaffar klakann í fiskiker Vinnslustöðvarinnar, vínið kemur frá Ástralíu og bjórinn ofan af klaka, eins og límonaði og kóka-kóla. Nammið verður íslenskt og fríkadellurnar af pönnu frúarinnar og smáræði úr eldhúsinu hans Gríms kokks, bakstur úr ofni Guðrúnar Helgu og frá Arnóri bakara. Svo verða vonandi ýmsir til að syngja eða halda spaklegar ræður. Reynt verður að stilla ræðum í hóf en tónlist er vel þegin ef einhver vill leggja á borð með sér.
Allir velkomnir sem vilja gleðja okkur fjölskylduna á þessum tímamótum.
Hér kemur svo myndin af afmælisspjaldinu og yfirskrift karlsins (t.d. Mt. 5.16) á einum veggnum í hinum fátæklega en bjarta sal:
Hér er svo farið að þynnast meðal veislugesta. Synd hvað mikið var eftir í ískarinu.
Má vera að ég fái fleiri myndir sendar innan tíðar. Nokkrar góðar birtust þó í Vaktinni í Eyjum af góðum gestum, kór Landakirkju og fleirum, en auk þeirra spiluðu Eymenn, þeir Finnur, Frikki og Einar, og kvartettinn Mandal söng eftirminnilega. Veislustjórarnir voru þeir synir mínir, Bjarni Ben og Sigurður Stefán, auk tengdasonarins in spe Péturs Vilhjálmssonar.
Hjartans þakkir fyrir alla gleðina sem þið sýnduð mér öll, takk fyrir kveðjur og gjafir, en allra bestu þakkir fyrir gjafir í styrktarsjóði. Í boðinu söfnuðust 82 þúsund krónur til innanlandsaðstoðar Hjálparstarfsins. Takk fyrir það og líka geitur til Afríku og önnur framlög. Maður þyrfti að verða fimmtugur sem oftast.
Og takk líka, elskuleg eiginkonan mín, Guðrún Helga fyrir að elda ofan í mannskapinn :)
Bloggar | Breytt 18.12.2008 kl. 00:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.12.2008 | 21:31
Talar með hjarta Íslendings
Merk hugrenningartengsl við liðna forsetatíð þessarar merku konu. Hittir hún ekki líka naglann á höfuðið þegar hún stillir sér hér upp við hlið alls þorra Íslendinga: Að fjármálahrunið kom flestum Íslendingum í opna skjöldu. Að fæstir hafi gert sér grein fyrir ábyrgð almennings á áhættunni sem tekin var með útrásinni. Að hátimbraðar hallir peninganna voru kynntar í öllum fjölmiðlum með glæsibrag.
Hér talar hún í það minnsta úr mínu hjarta og er heil sem fyrr. Sannur þjóðhöfðingi og stór sál.
„ Særandi að vera sakaður um glannalegar athafnir “ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.12.2008 | 23:29
Aðventan, tími iðrunar og yfirbótar
Á mannamáli mætti segja að tími iðrunar merki það að sjá að sér og tími yfirbótar merki það að gefa af sér. Er það ekki málið núna? Við þurfum að sjá að okkur vegna þess sem hefur gerst og er að ganga yfir. Hvernig tökum við á því?
Við þurfum síðan að hætta að soga allt inn á við í ótilgreindri reiði og ásökunum. Við þurfum að hætta alveg þessari sjálftöku, sjálfmiðlægni og sérhygli. Lífið þarf að fara að flæða áfram en það gerist ekki nema í tengslum við aðra í samfélaginu. Við komumst heldur ekkert áfram án þess að hafa andleg mið.
Við þurfum að láta gott af okkur leiða, stöðva reiði með mjúklegu andsvari. Við þurfum að horfa til þess hvað við getum gefið öðrum í gæðum þessa lífs með kærleika, friði og eindrægni í samskiptum hvert við annað. Við þurfum að færa öðrum þann rétt sem þau eiga. Við þurfum að gæta að hag náungans. Við þurfum að styða það góða sem er í gangi og leita með ljósi sannleikans að því sem er heilnæmt í mannlegum samskiptum.
Ég held það hljóti að vera í hag okkar allra að nýta núna aðventu kristinna manna til þess að bæta heiminn og búa okkur undir hátíð friðarins og þess æðra ljóss sem lýsir alltaf yfir landinu okkar góða.
1.12.2008 | 23:07
Samhjálp og sjálfshjálp, en ekki sterkan leiðtoga
Þetta er næstum því allt satt og rétt hjá Möller, nema þetta með sterkan leiðtoga. Það er eitt það hættulegasta fyrirbæri sem til er þegar efnahagslíf lítillar lýðræðisþjóðar stendur svona höllum fæti. Það fór ekki vel hjá Þjóðverjum að kalla eftir sterkum leiðtoga þegar hún var orðinn dauðleið á glundroða Weimar-lýðveldisins.
Við þurfum hins vegar að fara að þjappa okkur saman um lausnir. Það er örugglega það sem Möllerinn er að segja. Fjölmiðlar eru alltof helteknir af uppgjöfinni. Nú þyrftum við helst að geta flýtt jólunum og kalla fram það jákvæða í manninum. Það er löngu orðið tímabært að beina sjónum að manngildinu, kærleikanum og sáttargjörðinni.
Það er löngu orðið tímabært að sefa reiði og ásökun sem beinist bara eitthvað út í loftið. Réttlát reiði beinist að einhverju tilteknu óréttlæti eða broti. Réttmæt ásökun byggist á tiltekinni sekt. Í því ástandi sem kemur upp með óðagotinu og almennri reiði fólks út í "ástandið", að því er virðist á nýliðnum útifundum og árásum á lögreglustöð og Seðlabanka, verður ekki ljóst hvers eðlis þessi reiði er eða ásökun. Krafan um afsagnir "þeirra allra", ríkisstjórnar og seðlabankastjóra o.s.frv., er í mínum huga dæmi um óaðgreinanlega reiði og ásökun. Aðgreinanleg og réttlát reiði myndi hins vegar vera beint gegn tilteknu atviki eða sakarefni, i.e. aðgreindri sök til afsagnar.
Ótilgreind almenn reiði dregur ekki bara þann niður sem er haldinn slíkri reiði. Hún verður á endanum eins og svarthol sem dregur alla aðra með í hyldýpið. Hópniðurbrot er þekkt fyrirbæri, því miður. Leiðin út úr þessum ógöngum er lausnarmiðuð og þar þarf þessi þjóð nýja sjálfshjálparbók. Þá list kann þessi þjóð mæta vel af mörgum hörðum tímabilum í sögunni. Sjálfshjálpin og samhjálpin eru þær leiðarstjörnur sem við þurfum einmitt núna til að fara eftir, en bara ekki sterkan leiðtoga!
Íslendingar einblína á vandann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.11.2008 | 08:19
Rétt að byrja fyrst að lyfta krónunni
Þessi frétt vitnar um viturlega afstöðu forsætisráðherra í umræðunni um kronuna, sem annars einkennist af upphrópunum og óðagoti. Við höfum enga samningsstöðu eða stöðu til samanburðar krónunnar við nokkra aðra gjaldmiðla meðan hún er svona sokkin. Þá fyrst yrði eignarýrnun ofboðsleg ef við festum gengi hennar í þessari stöðu með því að ganga til skipta við annan gjaldmiðil.
Kónan er örugglega of lágt skráð. Við eigum þá fyrst að hugsa um skipti yfir í annan gjaldmiðil þegar hún hressist. Ekki kaupi ég dollar núna. Ekki kaupi ég evru núna. Þá fáum við of lítið fyrir laun og eignir. Þannig er allavega hagfræði mín, en þið leiðréttið mig, sem hrópið hvað hæst gegn eigin krónu.
Allt opið í gjaldeyrismálum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.11.2008 | 23:32
Þau höfðu unnið fyrir sínum bónusum, það er munurinn
Stóri munurinn á þessum bónusum og aukagreiðslunum í íslensku fjármálafyrirtækjunum er auðvitað sá að þetta fólk haðfi unnið hörðum höndum fyrir þessum þakkargjöfum frá eigendunum. Þeir urðu sam-arfar eigendanna sem seldu fyrirtækið á góðu verði.
Okkar bónusar eru óréttlátir af því að þeir runnu til einstakra "stjörnu" stjórnenda en ekki hinna sem þjónað höfðu sinn tíma árum og áratugum saman hjá bönkunum. Stjörnustjórnendur vinna aldrei fyrir sínum aukagreiðslum og hafa aldrei gert. Það er munurinn og það er líklega þess vegna sem réttlætiskennd Íslendinga er misboðið þessar vikurnar.
Ríflegir bónusar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.11.2008 | 22:15
Tími pöntunarfélaganna að renna upp?
Við lifum undarlega tíma. Það er of dýrt fyrir innflytjendur að kaupa inn og þá verður minna til í hillum glæsilegra verslana. Verst er að ekki er heiglum hent að verða sér út um byggingarefni. Fjórar spítur snúnar og klofnar í Húsasmiðjunni. Flísarnar ekki komnar. Þeir sem geta vel haldið áfram að byggja og laga fá ekki innflutta efnið.
Ætli veltan í versluninni eigi ekki eftir að ráðast af þessu fyrst og fremst, að ekki er eins mikið og áður flutt inn til að selja okkur? Það gæti kallað á meiri fyrirhyggju neytenda og pantanir. Ég hélt reyndar að þessir tímar kæmu ekki aftur, en viti menn. Verslunarhættir æskuáranna aftur komnir með nýlenduvöruverslunum og pöntunarfélögum. Ja, hérna.
Kaupmenn þrauka fram yfir jól | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
- ragnargeir
- baldurkr
- orri
- baenamaer
- peyji
- kristleifur
- vonin
- kjartanvido
- jonvalurjensson
- kitta
- daystar
- theld
- alit
- zeriaph
- sigthora
- arnisvanur
- kex
- eyjapeyji
- lundi
- bajo
- gauisidda
- gudni-is
- enoch
- icejedi
- nkosi
- gattin
- einarhardarson
- fhg
- gebbo
- helgigunnars
- kht
- credo
- krist
- kristinm
- trumal
- solvi70
- vefritid
- vilhjalmurarnason
- tbs
- thorhallurheimisson
Tenglar
Mínir tenglar
- Heimasíða Landakirkju í Vestmannaeyjum
- Sjúkrahúsið mitt í Tampa á Flórida Hér lærði ég klíníska sálgæslu 2003 - 2004 og lærði margt. Bráðamóttakan er mjög flott og allt annað í TGH enda hátæknispítali í fremstu röð.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Erlent
- Ár frá andláti Hind: Festist í bíl með látinni fjölskyldu
- Efla öryggi Danmerkur
- Pelicot yfirheyrður vegna óupplýstra mála
- Enginn meðbyr hjá Breivik
- Marianne Faithfull látin
- Momika myrtur í beinni á TikTok
- Ólíklegt að nokkur hafi komist lífs af
- Norska stjórnin sprungin: Ósátt um orkumál og valdframsal til ESB
- Rússneskir heimsmeistarar í listhlaupi voru um borð í vélinni
- Vilja að fangar afpláni erlendis