19.8.2008 | 18:16
Hugleiðing um kirkjusókn í Landakirkju
Einhverra hluta vegna fór ég að velta fyrir mér kirkjusókninni. Ef til vill af því að nú er frekar rólegt yfir að líta mest allan sumarleyfistímann. Síðsta sunnudag var kirkjusókn meiri en ég átti von á þar sem auglýsingar fórust alveg fyrir af tæknilegum ástæðum og miður ágúst er algengasti orlofstíminn í Eyjum. En hér er tölfræðin í Landakirkju fyrir 2007:
Miðað við kirkjusókn síðasta árs lætur nærri að hver einasti íbúi Vestmannaeyja hafi mætt oftar en fjórum sinnum til helgihalds í Landakirkju á árinu og fullyrði ég að það sé langt yfir landsmeðaltali! Ef aðeins eru taldar almennar guðsþjónustur á sunnudögum og öðrum helgidögum sótti hver íbúi kirkjuna oftar en einu sinni. Það er líka nokkuð gott. Svo mætti hvert sóknarbarn oftar en einu sinni í barnaguðsþjónustu eða kaffihúsamessu á árinu. Hver íbúi mætti líka oftar en tvisvar til jarðarfara, skírna, hjónavígslu eða í aðrar helgistundir safnaðarins.
Nánar tiltekið er þessi útreikningur þannig að íbúarnir voru 4040 hinn 1. desember 2007 en þar af voru 3675 skráðir í Þjóðkirkjunni. Hlutfallið er um 91% sem er hærra en hlutfall Þjóðkirkjunnar á Íslandi.
Heildarfjöldi þeirra sem sóttu helgihald Landakirkju var 18359 manns. Það er 4,5 föld íbúatala og nærri því fimmföld tala þjóðkirkjufólks.
Alls sóttu 5443 manns almenna guðsþjónustu á sunnudegi og aðra helga daga og hátíðir (1,3 x íbúatala og 1,5 x tala sóknarbarna). Þær voru 58 svo það gefur okkur meðaltalið 94 yfir allt árið. Fæst er jafnan í kirkju á sumrin nema við sérstök tilefni. Fjölmennasta messan var ferming á pálmasunnudag um 335 manns. Aðrar fermingarmessur voru einnig mjög fjölmennar. Einnig voru yfir 200 manns á fjölskylduguðsþjónustu á aðventunni, göngumessunni á goslokahátíð og á aðfangadagskvöld. Þar á eftir má nefna vorhátíð, sjómannadag, jólanótt og hvítasunnu.
Alls sóttu 3963 barnaguðsþjónustu og aðrar safnaðarguðsþjónustur, einsog t.d. kaffihúsamessu. Þær voru samtals 49 svo meðaltalið er 81 yfir árið. Fjölmennast var í barnaguðsþjónustu á æskulýðsdaginn í mars og 21. október um 160 manns í hvort skiptið.
Alls sóttu 8953 aðrar guðsþjónustur, helgistundir, hjónavígslur, skírnir og útfarir í Landakirkju. Helgistundin í Kirkjugarðinum er þó meðtalin hér en þar er talið að um 350 manns hafi safnast saman í bæn og blessun.
Alls voru guðsþjónustur 236 og gengu um 1400 manns til altaris á árinu.
Það skal tekið fram að hér eru ekki taldar með helgistundir á Hraunbúðum og sjúkrahúsinu, né heldur skírnir og helgistundir í heimahúsum eða helgistund í Herjólfsdal á Þjóðhátíð eða yfirleitt á öðrum stöðum utan við guðshúsið sjálft.
Ég á von á hærri tölum fyrir árið 2008 og reikna ég með að þar muni um góða kirkjusókn í maí og frábæra þátttöku í göngumessunni. Það er óskandi að menn sjái ástæðu til að þakka Guði fyrir gott sumar með góðri kirkjugöngu um leið og vetrarstarf safnaðarins fer í gang í september.
Mesta fjölgunin yrði trúlega ef þeir sem mæta einu sinni á ári tækju upp á því að mæta tvisvar á ári, nema ef það gerðist að sá sem mætti ekki í eitt skipti til kirkju sinnar allt síðasta ár myndi mæta einu sinni eða tvisvar á þessu ári. Það hefur reynst mörgum gagnleg hefð að mæta einn eða tvo tiltekna daga ársins og rækja þá sem sína helgu kirkjudaga. Mest fá þeir þó út úr kirkjugöngu sem mæta sem oftast. Og það eru vitaskuld þeir sem teljast oftast sem halda uppi góðri kirkjusókn í Landakirkju. Megi það vera okkur öllum til mikillar uppörvunar og eflingar í þjónustunni við Guð í Eyjum og víðar í hinum kristna heimi.
26.7.2008 | 11:25
Að prósessera á sumarleyfi
Það er merkilegt hvað hvíldar- og endurnæringarferlið er mikilvægt fyrir allt sem við ætlum okkur í framtíðinni. Líka til að vinna úr því sem áunnist hefur. Einsog fyrir bóndann að horfa yfir heyin sem komin eru í hús. Nú er ég búinn að vera í sumarleyfi í júlí. Fyrstu dagarnir fóru í það að vinda ofan af og ljúka verkefnum. Svo var það letin í sólinni í Brekkuskógi og yndileg skírn fyrsta afa-barnsins. Láta eftir sér að vaska og bóna amerísku drossíuna. Einn og einn dagur sem gestur í Yzta Kletti hjá lundaveiðimönnunum þar. Góðir veiðifélagar og svolítið strit að rölta um stíga, hált stórþýfi og bera lundapokana og veiðigræjurnar. Ótrúlegt að finna að enn eru vöðvar um allan kropp að vakna til lífsins með tilheyrandi verkjum og vellíðan. No pain - no gain, einsog sagt er í ræktinni. Þetta er bara meira, en auk þess stórkostlegt útsýni yfir haf og yfir jökla og fjöll og fell og eyjar. Aragrúi fugla í loftinu. Ótal þúsundir lunda í brekkum og svartur sjór af fugli á vaggandi öldum í æti. Háhyrningar og krökkt af síli. Iðandi lífríki fiskjarins í hafi.
Núna fyrst er ég að ná að trappa mig niður. Einn mikilvægur þáttur í því var erindislaus vikudvöl í Reykjavík. Krefjandi að slaka á inní miðju stressinu og í sama umhverfi og stór hluti vinnu minnar á sér stað með fundarhöldum og stjórnun í kirkjunni. Féll nokkrum sinnum og bæði hringdi og kom við á Biskupsstofu. Smá fráhvarfseinkenni. Mjög spennandi barátta við sjálfan mig. Stundum næstum pirraður. Þurfti meira að segja að ná mér niður og taka þátt í Skálholtshátíðinni án þess að vera að gera eitthvað sjálfur. Bara njóta og láta byggja sig upp.
Mér hefur verið bent á að mig skorti meiri hæfileika til að setjast niður og njóta afraksturs af allri þjónustunni. Nú er þetta einmitt að gerast. Jaðrar við titring í skrokknum og hrísl um sálarlífið. Besta endurnæringin er að skapa sér næði til að pósessera á þessar tilfinningar. Nú er ég allt í einu farinn finna hvernig ég horfi sannarlega með tillhlökkun til þess að taka af endurnýjuðum krafti á verkefnum sem ég veit að munu bíða síðsumars og í haust.
Með þeim orðum er best að rölta aðeins úti í garð á prestsetrinu og slá blettinn, tæta upp illgresið. Kannski að klippa runna. Rækta garðinn sinn. Þið fyrirgefið þetta hringsól um sjálfan mig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.7.2008 | 21:34
Takk fyrir Skálholtshátíð 2008 - Þorláksmessu á sumar
Það væsti ekki um okkur í Skálholti og margir lögðu leið sína til hins forna höfuðstaðar kristni og kirkju í stiftinu. Pílagrímagangan frá Þingvöllum til kirkjunnar var tákn hreyfingarinnar og leitar að innri krafti, ef ekki tæming hugans og streitu til að hleypa hinu andlega að í sálinni. Það sama hendir þá er koma á seinna hundraðinu og tveimur hjólum fyrir horn inn á hlaðið og eru allt í einu leiddir í mestu rósemd inn á víðar lendur fegurstu lista, fræðslu, söngs og tilbeiðslu. Ég skrifa þessi fáu orð til að þakka sérstaklega þeim er að dagskránni stóðu, sr. Sigurði vígslubiskupi, Sumartónleikunum og rektor og starfsfólki staðarins.
Að öðrum flytjendum ólöstuðum stóð Kolbeinn Bjarnason, flautuleikari, uppúr, sérstaklega vegna samspils hans í fyrirlestri um tónverkin og svo hljóðfæraleik þeirra Guðrúnar Óskarsdottur á tónleikunum, en ótrúleg túlkun hans á Ferneyhough í þessu sambandi. Voces Thules voru flottir og þá ekki síst Upphaf Völuspár Eggerts Pálssonar. Samhljómur hinna fornu tíða var þráður í gegnum hátíðarmessu og tónleika, en þar þakka ég líka Pax og Steingrími Þórhallssyni organista og stjórnanda. Ekki klikkaði Hörður Torfa sem fékk mig til að hlusta af meiri athygli á texta ljóða sinna en nokkru sinni áður, af því að þeir áttu að vera trúarlegir.
Já, hafið þökk, allir þátttakendur, leikir og lærðir vinir og collegar fyrir nærveru og lífsfyllingu og líka þessa klassísku elskusemi sem aldrei er fegurri en þegar ást Guðs birtist í hátíðleika kirkjulegrar menningar. Erum við ekki sannarlega í skuld við Guð og menn fyrir stað eins og Skálholt þar sem helgin ein ríkir?
Og sérstakar þakkir fyrir innihaldsríka prédikun sr. Sigurðar og þeirrar hugvekju sem fékk okkur til pælinga um samtíðina og snertingar við minni sögunnar, um kænsku og trúmennsku, en heiðarleika gagnvart farsæld þjóðarinnar.
12.7.2008 | 12:12
Hugsað um Ramses - ríkisborgararéttur barnsins?
Mikið hefur verið rætt um Paul Ramses og fjölskyldu hans, Rosmary og barnið þeirra. Varla er til sá flötur sem ekki hefur verið varpað upp í málinu. Meira að segja efasemdir um að hann geti ekki verið í þeirri hættu heima í Kenýja sem hann hefur talað um sjálfur. Það er hins vegar ekki það sem mér er efst í huga eftir alla þessa miklu umfjöllun.
Barnið þeirra Rosmary er miðpunktur hugleiðinga minna að þessu sinni. Væri ekki til mikilla bóta fyrir réttlæti okkar að það barn sem fætt er hér á Íslandi hljóti undantekningarlaust ríkisborgararétt í landinu? Það er regla sem gildir í Bandaríkjunum og sjálfsagt víðar um lönd, ef að er gáð. Hver ætli geti verið meiri Íslendingur en sá sem er fæddur hér á landi? Er hann ekki innfæddur?
Þar fyrir utan eigum við að gæta réttlætis gagnvart útlendingum í landinu. Við höfum sjálf verið útlendingar í eiginlegri og óeiginlegri merkingu þess orðs. Þetta er fullyrðing sem studd er fyrirmælum Guðs í Biblíunni og við lesum þessi fyrirmæli í ljósi þess að við erum börn Guðs í þessum parti sköpunarverksins, sem hann hefur falið okkur til að gæta.
2.7.2008 | 17:32
Rannsóknarréttur 24 Stunda
Í sólinni í Eyjum fékk ég undarlega dimmt símtal frá blaðakonu 24 Stunda sem krafði mig svara á kaldhæðnislegan hátt varðandi staðfesta samvist. Hún vildi fá já eða nei við því hverju ég svaraði pari sem kæmi að biðja mig um að staðfesta samvist í dag.
Ekki fékk ég mikla möguleika á að kanna hvers konar skoðanakönnun þetta var, en fljótlega heyrði ég að hér var ekki fagmennska í gangi. Hún vildi ekkert viðtal heldur já eða nei og það yrði birtur nafnalisti allra presta Þjóðkirkjunnar. Birtur yrði listi eftir svörum þessara presta. Ekkert hvort allir forstöðumenn trúfélaga yrðu spurðir. Sennilega bara Þjóðkirkjuprestarnir svo fríkirkjupresturinn í Reykjavík geti sagt eitthvað lúalegt um móðurkirkju sína Þjóðkirkjuna í glansandi viðtali.
Svarið við trukkalegri spurningu rétttar-blaðamannsins gat ekki verið efnislegt. Til að þurfa ekki að neita að svara - og gjalda þannig líku líkt - sagði ég sem rétt er að ég hafi ekki þurft að taka þessa ákvörðun ennþá. Ég eigi því einfaldlega eftir að ákveða það. "Þú ert þá óákveðinn," sagði hún. Þar sem ég fékk ekki að vita hvaða flokkar væru aðrir í boði en "já", "nei" eða "óákveðinn", sagði ég henni að hafa þetta eins og hún vildi. Eitt er víst að hún vildi ekkert viðtal.
Eftir þessa snöggsoðnu yfirheyrslu fékk ég það sterklega á tilfinninguna að búið væri að endurvekja rannsóknarréttinn og aðferðir miðaldamanna núna í blaðamennsku okkar tíma. Sviðsetning rannsóknarréttarins í auglýsingum Jóns Gnarr var þá ekki bara brandari. Fyrirbærið er orðið að praktical brandara í vinnubrögðum og hugsanagangi þessara blaðamanna og fréttastjóra.
Hvað sem líður þessum vinnubrögðum þeirra á 24 Stundum óska ég samkynhneigðum af heilum hug til hamingju með þau skil að geta leitað til fleirri vígslumanna en áður. Það hlýtur að vera léttir fyrir þau pör sem vilja leita til presta eða annarra trúarleiðtoga. Bið ég alla sem um það fjalla að gæta að málefnalegri umfjöllun. Eitt af því er athugun á greinagerð með þessum nýju lögum, þar sem skilyrt er að skoðanafrelsi þeirra sem eru vígslumenn að hjúskaparlögum og hafa nú þessa heimild, samkvæmt lögum um staðfesta samvist, verði virt. Það er mikilvæg forsenda fyrir þeirri sátt sem náðist t.d. innan Þjóðkirkjunnar um að mæla með þessari réttarbót í lögum um staðfesta samvist.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 18:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
19.6.2008 | 21:14
Dagur eiginkonu, dætra og dótturdóttur
30.5.2008 | 22:22
Sjómenn! Til hamingju með daginn!
Þeir sækja sjóinn og eiga heiður skilinn, en segja má að það sé lágmark að halda sjómannadag hátíðlegan einu sinni á ári. Við ættum að hefja hinn forna sjómannadag í janúar aftur upp til virðingar og muna það alla hina daga ársins hvað sjómenn leggja til samfélagins með því að draga stöðugt björg í bú við stöðugt flóknari aðstæður í atvinnulega séð. Til hamingju íslenskir sjómenn. Sjáumst niðri við höfnina, í dagskránni allri og svo í kirkjunni á sunnudag.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.5.2008 | 17:11
Skjálftinn greinilega vestar og minni hér í Eyjum en 2000
Þessi Suðurlandsskjálfti var mjög öflugur og ljósakrónur á ferðinni lengi á eftir (svona korter), svolítið grjóthrun inni í Dal og öll hús á ferðinni eftir því sem Eyjarnar köstuðust til.
Mikið verður manni hugsað til þeirra sem eru þarna nær upptökunum og bið ég þess að enginn skaðist í fátinu og hugsanlegum eftirskjálftum. Guð veri með ykkur - og nú kom einn smáskjálfti 17.10 sem finnst inni í húsi. Eitthvað hefur hann nú hrist til í Ölfusinu. Guð veiti ykkur vernd sína því ekki veitir af frammi fyrir slíku ofurafli.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2008 | 12:14
Kirkjan er hrein og bein í þessari sölu
Kirkjuþing 2007 samþykkti að selja íbúðarhúsnæðið til Prestsbakkasóknar og því kom ekki nein önnur sala til greina. Heimild Kirkjuráðs var bundin við þann vilja Kirkjuþings, sem var skýr. Það á sínar skýringar hvað það hefur tekið langan tíma að ganga endanlega frá sölunni, en það þarf einfaldlega að fá sinn tíma svo öllu réttlæti sé fullnægt, afmörkun lóða húsa, kirkju og garðs o.s.frv.
Það er ekkert nema eðlilegt að Prestsbakkasókn fái aðstöðu í íbúðarhúsinu, sem er aflagt prestsetur. Húsið stendur mjög nálægt kirkjunni og kirkjugarðinum og því er þetta góður kostur sem þjónustuhús og safnaðarheimili. Þar getur söfnuðurinn hist í kirkjukaffi, kórinn haft aðstöðu og annað safnaðarstarf getur farið þar fram líka, s.s. barna og æskulýðstarf og fræðsla. Þá koma þarna snyrtingar og þjónusturými fyrir kirkjugarðinn og prestur og djákni gætu haft þar viðtalsherbergi eða aðstöðu fyrir og eftir helgihald eins og í mörgum öðrum sóknum. Það þykir sjálfsagt í dag.
Í mínum huga er frábært að sjá þetta gerast og sjálfsagt að koma þessari aðstöðu upp vegna grunnþjónustu kirkjunnar á staðnum - þótt söfnuðurinn sé fámennur. Þótt ekki sé margt fólk í sókninni á það líka rétt á grunnþjónustu kirkjunnar og sómasamlegri aðstöðu til safnaðarstarfs, ekki síður en fólk í þéttbýli. Það er mín skoðun á því og það er alls ekki miklu til kostað miðað við þau hunduð milljóna sem fara í byggingu safnaðarheimila í borgum og bæjum.
Prestsekkjan er hreint ekki ekkja eftir síðasta prest og heldur ekki eftir þann sem var þar áður. Það eru liðin meira en tuttugu ár síðan þau sátu staðinn og sr. Yngvi Þ. Árnason lauk sinni prestsþjónustu í ársbyrjun 1987. Það sjá það allir að slíkt getur ekki skapað fólki rétt til búsetu eða eignarhalds á jörðum og húsum sem kirkjan er þinglýstur eigandi að.
Kirkjan tvísaga um sölu á Prestbakka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.3.2008 | 10:19
Messufall í Landakirkju
Ótrúlegt en satt. Vegna fannfergis og skafhríðar þarf ég í fyrsta sinn að fella niður messu í þann tæpa áratug sem ég hef verið hér sóknarprestur. Bið alla Eyjamenn að vera ekki að brjótast til kirkju í dag því barnaguðsþjónustan kl. 11 og guðsþjónustan kl. 14 falla báðar niður.
Blessunaróskir, Kristján Björnsson
Vont veður í Vestmannaeyjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
- ragnargeir
- baldurkr
- orri
- baenamaer
- peyji
- kristleifur
- vonin
- kjartanvido
- jonvalurjensson
- kitta
- daystar
- theld
- alit
- zeriaph
- sigthora
- arnisvanur
- kex
- eyjapeyji
- lundi
- bajo
- gauisidda
- gudni-is
- enoch
- icejedi
- nkosi
- gattin
- einarhardarson
- fhg
- gebbo
- helgigunnars
- kht
- credo
- krist
- kristinm
- trumal
- solvi70
- vefritid
- vilhjalmurarnason
- tbs
- thorhallurheimisson
Tenglar
Mínir tenglar
- Heimasíða Landakirkju í Vestmannaeyjum
- Sjúkrahúsið mitt í Tampa á Flórida Hér lærði ég klíníska sálgæslu 2003 - 2004 og lærði margt. Bráðamóttakan er mjög flott og allt annað í TGH enda hátæknispítali í fremstu röð.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 39868
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Erlent
- Ljónsungi haldlagður á heimili YouTube-stjörnu
- Norðmenn stöðva skip vegna gruns um skemmdarverk
- Hann kom aldrei til baka
- Gekk inn í blóðbað
- Par fannst látið í íbúð
- Búið að finna svörtu kassana
- Ár frá andláti Hind: Festist í bíl með látinni fjölskyldu
- Efla öryggi Danmerkur
- Pelicot yfirheyrður vegna óupplýstra mála
- Enginn meðbyr hjá Breivik